Skúffukökur
Úr Ásta
(Munur milli útgáfa)
Salvor (Spjall | framlög)
(Ný síða: == Skúffukaka 1 == 250 g hveiti 200 g sykur 100 g púðursykur 4 kúfaðar msk. af góðu kakói 1 tsk. matarsódi 1 tsk. lyftiduft ½ tsk. salt 2 egg ⅔ bolli mjólk rú...)
(Ný síða: == Skúffukaka 1 == 250 g hveiti 200 g sykur 100 g púðursykur 4 kúfaðar msk. af góðu kakói 1 tsk. matarsódi 1 tsk. lyftiduft ½ tsk. salt 2 egg ⅔ bolli mjólk rú...)
Núverandi breyting frá og með 30. nóvember 2012 kl. 00:23
Skúffukaka 1
250 g hveiti
200 g sykur
100 g púðursykur
4 kúfaðar msk. af góðu kakói
1 tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
2 egg
⅔ bolli mjólk
rúmur ½ bolli af súrmjólk/AB mjólk
1 tsk. vanilludropar
125 g brætt smjör
Aðferð:
Hitið ofninn í 170〫-175〫. Smyrjið skúffukökumótið með olíu. Bræðið smjörið. Setjið öll þurrefnin (þó ekki matarsódann) í hrærivélarskál og setjið síðan eggin ofan í skálina og súrmjólkina. hræra matarsódanum út í mjólkina Setjið því næst mjólkurblönduna út í, vanilludropana og brætt smjörið. Hrærið rólega þar til deigið er komið saman (u.þ.b. 1 mínúta). Hellið í formið og bakið í u.þ.b. 20-25 mínútur.
Ljóst krem
120 g smjör
3 msk. kaffi
1- 1½ msk. kakó
vanilludropar
flórsykur