Saffran
Úr Ásta
(Munur milli útgáfa)
Salvor (Spjall | framlög)
(Ný síða: <pre> Lúsíuhátíð 13. desember Svíþjóð er siður að halda upp á 13. desember með Lúsíuhátíð þar sem Lúsía og og þernur hennar syngja jólalög. Snemma morguns ...)
(Ný síða: <pre> Lúsíuhátíð 13. desember Svíþjóð er siður að halda upp á 13. desember með Lúsíuhátíð þar sem Lúsía og og þernur hennar syngja jólalög. Snemma morguns ...)
Núverandi breyting frá og með 6. september 2013 kl. 12:03
Lúsíuhátíð 13. desember Svíþjóð er siður að halda upp á 13. desember með Lúsíuhátíð þar sem Lúsía og og þernur hennar syngja jólalög. Snemma morguns eru á ferli hvítklæddar lúsíur með ljós í hárinu sem vekja fólk og koma færandi hendi með bakka þar sem á er kaffi, piparkökur og lúsíuketti. Lúsíukettirnir eru smábrauð með kryddinu saffran sem gerir þau fallega sólgul og ilmandi. Þau eru gjarnan formuð eins og hið forna tákn sólhjól. Lúsíurnar með ljós í hári og gullnu brauðin formuð með geisla eins og sólin minna á birtu og yl þegar skammdegið er sem mest. Það er venjan að syngja Lúsíulagið þennan dag en hér er það með íslenskum texta eftir Elsu E. Guðjónsson. Heilög Lúsía Hljóð er in höfga nótt. Hægum í blænum dormar nú sérhver drótt. Dimmt er í bænum. Birtir af kertum brátt, blíð mærin eyðir nátt: heilög Lúsía, heilög Lúsía. Veröld í vændum á vonglaðar stundir. Ljósdýrð frá himnum há hríslast um grundir, Drottinn því bjarma ber blessuð mær öllum hér, heilög Lúsía, heilög Lúsía. Líða um lönd og sæ ljúfsætir ómar. Streyma frá byggð og bæ blæfagrir hljómar. Hennar lof heyrast skal himins um bjartan sal helgrar Lúsíu, helgrar Lúsíu! 1996/1997 Elsa E. Guðjónsson. Saffranbrauð Í þessi brauð þarf hveiti, smjör, egg, sykur, mjólk, rúsínur, ger og salt og síðast en ekki síst kryddið saffron en það kemur svona rústrauðir á lit en það eru þeir sem gera brauðið fallega gullt og af því kemur sérstakt saffranbragð og lykt. Ein uppskrift af saffranbrauðum er svona: 125 gr. smjör eða smjörlíki 5 dl af mjólk 2 teskeiðar (50 gr) af geri 1/2 teskeið af salti 1 dl af sykri 1 gr af saffran 2 egg 16 dl af hveiti. Rúsínur til að skreyta og penslað með eggi. Feitin er brædd og mjólk hellt þar og haft svona fingurheitt (37C). Gerið er hrært í mjólkina og saffranið er mulið (með dálitlu af sykri) og hrært út í mjólkina. Eggin hrærð sérstaklega og síðan bætt út í og hveitinu er bætt í og deigið hrært. Hveiti stráð ofan á og hreinn klútur lagður yfir deigið og það látið lyfta sér þar til það hefur tvöfaldast. Síðan er deigið hnoðað og það á að vera ljóst, teygjanlegt og frekar laust í sér. Nú má móta deigið í brauð og setja á smurða ofnplötu og láta lyfta sér í svona hálftíma. Pensla svo með eggi og skreyta með rúsínum. Saffranbrauðið má móta í alls konar form og snúninga, stundum eru búnir til kransar og fléttur. Brauðið verður fljótt þurrt og það er því ágætt að frysta það og afþýða svo í örbylgjuofni þega á að borða það heitt.