Mexíkóskur lambakjötsréttur
(Munur milli útgáfa)
Salvor (Spjall | framlög)
(Ný síða: <pre> Mexíkóskur lambakjötsréttur með grískri jógúrtsósu 1 kg lambakjöt 2 msk sólblómaolía 2 hvítlauksgeirar, marðir 1 ...)
Nýrri breyting →
(Ný síða: <pre> Mexíkóskur lambakjötsréttur með grískri jógúrtsósu 1 kg lambakjöt 2 msk sólblómaolía 2 hvítlauksgeirar, marðir 1 ...)
Nýrri breyting →
Útgáfa síðunnar 3. nóvember 2012 kl. 11:23
Mexíkóskur lambakjötsréttur með grískri jógúrtsósu 1 kg lambakjöt 2 msk sólblómaolía 2 hvítlauksgeirar, marðir 1 stór laukur, saxaður 2 msk hveiti 1 tsk kúmenduft 1 tsk kóríanderduft 150 ml hvítvín 400 g niðurskornir tómatar í dós 2 msk tómatmauk (puré) salt og nýmulinn pipar 800g kúabaunir (black-eyed beans) eða cannellini baunir í dós, hellið af baununum og skolið þær 4 msk mangó kryddmauk (chutney) ferskt kóríander eða mynta Grísk jógúrtsósa 150 ml grísk jógúrt, krydduð með salti, pipar og 2 msk af söxuðu fersku kóríander eða myntu. Aðferð Snyrtið og skerið kjötið í teninga. Setjið olíu á pönnu og steikið kjötið – takið það af pönnunni að steikingu lokinni. Lækkið hitann og mýkið laukinn í 2-3 mín. Bætið hveiti, kúmendufti og kóríanderdufti saman við og hrærið í 2 mín. Bætið hvítvíni, tómötum og tómatmauki saman við. Hrærið og látið suðuna koma upp. Kyddið með salti op pipar. Setjið lokið á og eldið í 1 og 1/2 - 2 klst. Bætið baunum og mangómauki út í þegar 10 mín. eru eftir af eldunartíma. Skreytið með kóríander- eða myntugreinum. Berið fram með soðnum hrísgrjónum. Verði ykkur að góðu!