Kjúklingabaunir

Úr Ásta
Útgáfa frá 16. nóvember 2012 kl. 16:37 eftir Salvor (Spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á: flakk, leita

Kjúklingabaunaréttur

1 laukur 2-3 hvítlauksrif 1 dl rúsínur 1 dl apríkósur (þurrkaðar) 600 g niðursoðnir tómatar 1 msk hnetusmjör 1 tsk Garam Masala 2 dl eplasafi 2 dl vatn 1 bolli kjúklingabaunir 2 msk sítrónusafi salt og pipar, ef vill 1 dl cashew hnetur

Baunirnar eru lagðar í bleyti í sólarhring, soðnar í 1 klst og soðinu svo hellt af. Saxið lauk og hvítlauk og léttsteikið í olíu. Ávextirnir brytjaðir og þeim bætt á pönnuna ásamt tómötunum, hnetusmjöri, Garam Masala, eplasafa og vatni. Látið sjóða saman í ca. 20 mín. Baununum blandað saman við réttinn á pönnunni og hitað vel. Að síðustu er sítrónusafanum bætt út í ásamt salti og pipar. Hnetunum er svo stráð yfir réttinn.

Kjúklingabaunir m/ kartöflum og tómötum

6-8 msk. ólífuolía 3-4 hvítlauksrif, pressuð 2 laukar, gróft saxaðir 3-5 tómatar, smátt skornir 4 soðnar kartöflur, skrældar og skornar í teninga 1½ bolli soðnar kjúklingabaunir 1-2 tsk. salt 1/8 tsk. svartur pipar 1½ msk. sítrónusafi 1/2-1 bolli vatn

Leggið baunirnar í bleyti daginn áður (miðað við 24 klst.). Sjóðið svo í 80 mín. Hitið olíuna í potti, steikið laukinn þar til hann er glær, bætið hvítlauknum út í og síðan tómötunum. Hrærið og sjóðið í 1-2 mín. Bætið öllu öðru út í, vatninu síðast. Látið suðuna koma upp. Lokið pottinum og sjóðið við vægan hita í 20 mín


Grænmetisréttur frá Túnis

ólífuolía 2 laukar, skornir þunnt 3 bollar þunnt skorið hvítkál salt 1 stór græn paprika 1 stór rauð paprika 3 tsk kóríanderduft 1 tsk túrmerik 1 tsk kanill cayenne pipar e. smekk 2 dósir niðurs. tómatar 1/2 bolli rúsínur 1 dós kjúklingabaunir eða ca. 250-300 g soðnar kjúklingabaunir (tæpur bolli ósoðnar) 1 msk sítrónusafi kúskús eða hýðishrísgrjón 1 poki möndlur, afhýddar jöklasalat eða annað létt salat (til að hafa með matnum)

Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið laukinn. Bætið hvítkáli út á og látið malla við lágan hita þar til kálið er farið að mýkjast. Stráið salti yfir og hrærið í af og til. Bætið paprikunni út í ásamt kryddinu og látið allt krauma í nokkrar mínútur. Bætið tómötum, rúsínum og soðnum kjúklingabaunum út í og látið krauma í korter eða þar til grænmetið er allt orðið mjúkt. Ef ekki eru notaðar niðursoðnar baunir þarf að leggja þær í bleyti kvöldið áður og sjóða í fersku vatni í 1 klst áður en þeim er bætt út í. Bragðbætið að síðustu með sítrónu-safanum, ásamt salti eftir smekk. Berið fram með smáttskornum fetaosti, jöklasalati, ristuðum möndlum, og kúskús eða hýðishrísgrjónum. Gott er að setja góða smjörklípu saman við kúskús eða bragðbæta grjónin með grænmetistening sem settur er út í soðvatnið ásamt kanilstöng og hvítlauksrifi.


Indverskur kjúklingabaunapottréttur

1 laukur 1 hvítlauksrif 1 ferskt chili 2 cm engiferrót 2-3 msk milt karrímauk frá pataks (eða hvaða framl. sem er svo sem) 1 msk ólífuolía 1 lítill blómkálshaus (einnig má nota spergilkál í staðinn) 1 dós kjúklingabaunir (um 400 g soðnar baunir) 1 dós kókosmjólk (400 ml) 100 g sykurbaunir (snjóbaunir) 2 tómatar smá sjávarsalt og nýmalaður pipar 25 g ferskt kóríander

Hægt er að nota venjulegt krydd í stað karrímauksins og þá er þetta blandan: 2 tsk cumin, 2 tsk kóríander, 1 tsk kanill, 1 tsk paprika og 1 tsk túrmerik. Þennan rétt má frysta. Skerið laukinn í fernt, chili í tvennt og fræhreinsið. Afhýðið engiferrótina og skerið tómatana í bita. Setjið lauk, hvítlauk, chili, engifer og karrímauk í matvinnsluvél og maukið. Hitið olíu á pönnu og steikið maukið þar í um 2 mín og hrærið stöðugt í. Setjið blómkál, kjúklingabaunir og kókosmjólk út í og sjóðið í um 10 mín til viðbótar án loks. Leyfið sykurbaununum að malla með síðustu 5 mín. Smakkið til með sjávarsalti og svörtum pipar og dreifið smátt söxuðu kóríander yfir réttinn. Hann er til þegar sykurbaunirnar eru orðnar hæfilega meyrar. Berið fram. Gott er að hafa basmati hrísgrjón og einfalt tómatasalat með þessum rétti. Ef fólk er ekki hrifið af sterku bragði þá má alveg sleppa chiliinu.

Grískur baunaréttur

1/2 kg soðnar hvítar baunir 1-2 hvítlauksrif svartar ólívur litlir tómatar graslaukur, klipptur e.t.v. laukhringir

1/2 bolli ólífuolía 4 msk sítrónusafi salt og pipar

Leggið baunirnar í bleyti yfir nótt. Hellið soðinu og setjð nýtt vatn á þær og sjóðið þar til þær eru linar. Sigtið vatnið frá og látið þær kólna. Pressið hvítlaukinn, skerið ólífurnar í tvennt og tómatana í litla báta og blandið baununum saman við. Blandið saman olíu, sítrónusafa og kryddi og hellið yfir blönduna og klippið graslaukinn yfir og leggið þunna laukhringi efst, ef lauku er notaður. Berið fram með heimabökuðu brauði.

Kjúklingabaunaréttur með hreinni jógúrt

2 msk matarolía

1-2 laukar, saxaðir
1 græn paprika 

2 hvítlauksrif, pressuð 1 ½ tsk karrý 1 msk hvítvínsedik 1 dós tómatar (400 g) 600 g kjúklingabaunir (eða 2 dósir niðursoðnar kjúklingabaunir)

600 g kartöflur, flysjaðar og skornar í bita 

1 hrein jógúrt

1. Ef kjúklingabaunirnar eru ekki niðursoðnar þarf að leggja þær í bleyti í 12 klst., eða yfir nótt og sjóða þær í 1 ½ klst 2. Hitið olíu í potti. Steikið lauk, papriku, hvítlauk og karrý

í olíunni þar til laukurinn er orðinn mjúkur 

3. Bætið við ediki, tómötum (með safa), kjúklingabaunum og kartöflum. Látið krauma í u.þ.b. 20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru soðnar. Hrærið við og við 4. Jógúrtin er notuð sem sósa út á Berist fram með brauði og salati

Klúklingabaunir lagðar í bleyti yfir nótt. Soðnar í klukkutíma. Stór laukur , paprika, grænar baunir. olia, hvítlauksrif karrímauk frá Pataks(Mild curry paste coriander og cumin)


Olían er hituð með smáttskornum lauknum og 1 msk. af karrýmaukinu.

Grænmetið og baunirnar sett út í. Látið malla.

Rétturinn er tilbúinn svona, en það má líka setja þetta í deig og djúpsteikja. Gott er að borða hrísgrjón og nanbrauð með þessu. Mjög gott er að hafa Raitu með þessu.

Raita= Hrein jógúrt, smátt skorin c.a 1/5 agúrka, kókosmjöl og smá kumin krydd.

Marokkóskur grænmetisréttur


  • 1/4 tsk chilipipar , eða eftir smekk
  • 1 tsk engifer (duft)
  • 150 g gulrætur
  • 2-3 hvítlauksgeirar
  • 1 dós kjúklingabaunir
  • 2 tsk kummin
  • 1 kúrbítur
  • 1 laukur
  • salt
  • 500 g sætar kartöflur
  • 1 dós tómatar
  • 2 tsk túrmerik
  • 350 ml vatn
  • 2 msk ólífuolía



Saxið laukinn og pressið hvítlaukinn eða saxið hann smátt. Hitið olíuna í potti og látið lauk og hvítlauk krauma

við meðalhita í nokkrar mínútur án þess að brúnast.


Bætið þá kummini, túrmeriki, engifer og chili-pipar í pottinn, hrærið og látið krauma þar til kryddið ilmar vel. Setjið tómatana og kjúklingabaunirnar út í, ásamt vökvanum í dósunum, bætið vatninu við, saltið, hitið að suðu og látið malla smástund.

Afhýðið sætu kartöflurnar og gulræturnar

og skerið þær í fremur litla bita. Skerið kúrbítinn í bita.

Setjið grænmetið út í og látið réttinn malla undir loki í um 20 mínútur, eða þar til grænmetið er meyrt.

Smakkið og bragðbætið með salti eftir þörfum. Berið fram með kúskúsi.

Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri