Fiskréttir
(Ný síða: == Sjávarréttabollur í karrýostasósu fyrir sex == 400 gr. ýsuflök 100 gr. rækjur 1 laukur 1 tsk. salt 1/4 tsk. pipar 100 gr. rjómaostur 2 tsk. hveiti 1 egg Sósa: 100 gr. ...) |
(→Sjávarréttabollur í karrýostasósu fyrir sex) |
||
Lína 33: | Lína 33: | ||
Skreytið með gúrku og grænni papriku. | Skreytið með gúrku og grænni papriku. | ||
Borið fram með hrísgrjónum eða kartöflum | Borið fram með hrísgrjónum eða kartöflum | ||
+ | |||
+ | |||
+ | == Ýsa í raspi == | ||
+ | 3-4 ýsuflök | ||
+ | |||
+ | 2 dl hveiti | ||
+ | |||
+ | 2-3 egg | ||
+ | |||
+ | 3 dl Bónus rasp | ||
+ | |||
+ | Sítrónupipar | ||
+ | |||
+ | Aromat krydd | ||
+ | |||
+ | Hvítur pipar | ||
+ | |||
+ | Salt | ||
+ | |||
+ | Heima smjörl. | ||
+ | |||
+ | Aðferð: Takið þrjá djúpa diska, setjið hveiti í einn, egg í annan og raspinn í þriðja. Kryddið raspinn með salti og pipar, aromat og sítrónupipar. Það er líka bráðnauðsynlegt að setja sítrónupipar í hveitið og eggin. Skerið fiskinn í þunnar sneiðar og veltið honum fyrst upp úr hveitinu, síðan egginu og loks raspinum. Steikið fiskinn upp úr smjörlíki á pönnu við meðalhita. | ||
+ | Meðlæti: Soðnar kartöflur, kokteilsósa og laukur steiktur á pönnu (smá sykur á laukinn þegar hann er alveg að verða steiktur). | ||
+ | |||
+ | == Suðrænn saltfiskur == | ||
+ | 500 g saltfiskur ( útvatnaður ) | ||
+ | |||
+ | 6 soðnar kartöflur | ||
+ | |||
+ | 1/2 krukka sólþurrkaðir tómatar (olían er notuð líka ) | ||
+ | |||
+ | 200 g rifinn ostur | ||
+ | |||
+ | 1 dós niðursoðnir tómatar, saxaðir | ||
+ | |||
+ | 4 hvítlauksrif | ||
+ | |||
+ | 1/2 búnt fersk steinselja | ||
+ | |||
+ | 1 rauðlaukur, saxaður | ||
+ | |||
+ | 1 púrra ( græni hlutinn )saxaður | ||
+ | |||
+ | 2 gulrætur, saxaðar | ||
+ | |||
+ | 1 rauð paprika, söxuð | ||
+ | |||
+ | 1 kjúklingateningur ( Knorr ) | ||
+ | |||
+ | 1/2 msk. paprikuduft | ||
+ | |||
+ | 1/2 tsk. hvítur pipar | ||
+ | |||
+ | 2 msk. sítrónusafi | ||
+ | |||
+ | Sjóðið saltfiskinn hæfilega, roð- og beinhreinsið ef þarf og losið í sundur. Saxið eða hálfstappið kartöflurnar og saxið sólþurrkuðu tómatana. Hitið olíuna ( af sólþurrkuðu tómötunum ) á pönnu og bætið í hvítlauknum, steinseljunni, rauðlauknum, púrrunni, gulrótunum, og paprikunni og látið krauma smá stund. Stráið þá yfir kryddinu og bætið á pönnuna niðursoðnu tómötunum, kjúklingateningnum og sítrónusafanum. Látið þetta malla í u.þ.b. 30 mínútur.Hrærið þá saltfiskinum, kartöflunum og sólþurrkuðu tómötunum saman við, setjið í eldfast mót og stráið rifnum ostinum yfir. Bakið í 200° heitum ofni þar til osturinn byrjar að brúnast. |
Útgáfa síðunnar 29. nóvember 2012 kl. 23:24
Sjávarréttabollur í karrýostasósu fyrir sex
400 gr. ýsuflök 100 gr. rækjur 1 laukur 1 tsk. salt 1/4 tsk. pipar 100 gr. rjómaostur 2 tsk. hveiti 1 egg
Sósa: 100 gr. rjómaostur 1 peli rjómi 2-3 dl. fisksoð 1 tsk, karrý 1 tsk. hlynsýróp 100 gr. rifinn ostur
Aðferð:
Hakkið ýsuna, rækjurnar og laukin. Blandið hinum efnunum saman við. Hitið ca. hálfan líter af vatni í potti.
Mótið fiskdegið í bollur, u.þ.b. 18 stykki og sjóðið í 5 mín. Setjið bollurnar í eldfast mót.
Hrærið rjómaostinn út með karrýinu og sýrópinu, þynnið svo með soðinu og rjómanum.
Hellið þessu yfir bollurnar og stráið rifnum osti yfir. Bakað við 200°c í 15 mín. Skreytið með gúrku og grænni papriku. Borið fram með hrísgrjónum eða kartöflum
Ýsa í raspi
3-4 ýsuflök
2 dl hveiti
2-3 egg
3 dl Bónus rasp
Sítrónupipar
Aromat krydd
Hvítur pipar
Salt
Heima smjörl.
Aðferð: Takið þrjá djúpa diska, setjið hveiti í einn, egg í annan og raspinn í þriðja. Kryddið raspinn með salti og pipar, aromat og sítrónupipar. Það er líka bráðnauðsynlegt að setja sítrónupipar í hveitið og eggin. Skerið fiskinn í þunnar sneiðar og veltið honum fyrst upp úr hveitinu, síðan egginu og loks raspinum. Steikið fiskinn upp úr smjörlíki á pönnu við meðalhita. Meðlæti: Soðnar kartöflur, kokteilsósa og laukur steiktur á pönnu (smá sykur á laukinn þegar hann er alveg að verða steiktur).
Suðrænn saltfiskur
500 g saltfiskur ( útvatnaður )
6 soðnar kartöflur
1/2 krukka sólþurrkaðir tómatar (olían er notuð líka )
200 g rifinn ostur
1 dós niðursoðnir tómatar, saxaðir
4 hvítlauksrif
1/2 búnt fersk steinselja
1 rauðlaukur, saxaður
1 púrra ( græni hlutinn )saxaður
2 gulrætur, saxaðar
1 rauð paprika, söxuð
1 kjúklingateningur ( Knorr )
1/2 msk. paprikuduft
1/2 tsk. hvítur pipar
2 msk. sítrónusafi
Sjóðið saltfiskinn hæfilega, roð- og beinhreinsið ef þarf og losið í sundur. Saxið eða hálfstappið kartöflurnar og saxið sólþurrkuðu tómatana. Hitið olíuna ( af sólþurrkuðu tómötunum ) á pönnu og bætið í hvítlauknum, steinseljunni, rauðlauknum, púrrunni, gulrótunum, og paprikunni og látið krauma smá stund. Stráið þá yfir kryddinu og bætið á pönnuna niðursoðnu tómötunum, kjúklingateningnum og sítrónusafanum. Látið þetta malla í u.þ.b. 30 mínútur.Hrærið þá saltfiskinum, kartöflunum og sólþurrkuðu tómötunum saman við, setjið í eldfast mót og stráið rifnum ostinum yfir. Bakið í 200° heitum ofni þar til osturinn byrjar að brúnast.