Vísur
Úr Ásta
Austan kaldinn á oss blés, upp skal faldinn draga. Veltir aldan vargi Hlés, við skulum halda á Siglunes. Bjarni Þorsteinsson segir í Íslenskum þjóðlögum, bls. 905 „að Ingimundur nokkur í Sveinungsvík hafi ort vísuna, þá er hann hraktist við 4. mann á opnu fari austan frá Langanesi og vestur á Siglunes, þar sem þeir loks náðu nauðuglega landi.“ Björg Einarsdóttir (Látra-Björg) (1716–1784) Orgar brim á björgum, bresta öldu hestar, stapar standa tæpir, steinar margir veina. Þoka úr þessu rýkur, þjóð ei spáir góðu. Halda sumir höldar hríð á eftir ríði. Björg Einarsdóttir (Látra-Björg) (1716–1784) Brimið stranga ára er ymja drangar stórir hér, á fimbulvanga glórir gler, glymja ranga jórarnir Vem kan sejla foruden vind? Hver siglir byrlaust um hafið hratt hver getur róið án ára, hver getur vininn sinn vænsta kvatt og varist grátinum sára. Ég get siglt byrlaust um hafið hratt og báti róið án ára. En aldrei vininn minn vænsta kvatt og varist grátinum sára.