Undirfellsætt
Hér eru slóðir og efni sem tengist ætt móður minnar Ástu Hannesdóttur frá Undirfelli og tíðaranda í Vatnsdal og nálægum slóðum.
- Þar segir: "foreldrar hans flytja frá Þórormstungu að Undirfelli 1907. Undirfell var mikil og góð bújörð, kirkjujörð og höfuðból, þar voru heyskaparlönd meiri og betri en gerðist.Skúli vann að búi foreldra sinna á Undirfelli og flytur með þeim að Þórormstungu aftur tuttugu árum síðar, en Hólmfríður systir hans og Hannes Pálsson taka við allri jörðinni að Undirfelli."
- Hannes afi og Undifell Málsvari búlausra manna
- Undirfell - Hjöleifur fer, skólajörð
- Undirfell skólajörð 2
- Rifist um Snæringsstaði og Undirfell skólajörð 3
- Fáfróðar stúlkur Holboe rannsakar menntun á Íslandi
16. des. 1895 Fundur inn samþykkti því í einu hljóði að stofna „pöntunarfélag fyrir Húnavatnssýslu," sem þeir nefndu Kaupfélag Húnvetninga (K. H.) Voru félaginu sett lög, þegar á stofnfundinum. í stjórn voru kosnir: Þorleifur Jónsson alþm. á Syðri-Löngumýri, formaður, og meðstjórnendur: Benedikt Blöndal í Hvammi í Vatnsdal og Árni A. Þorkelsson á Geitaskarði. Endurskoðendur voru ekki kosnir fyrr en á fulltrúafundi 2. júlí 1896, og hlutu kosningu: Björn Sigfússon alþm., þá í Grímstungu og Jón Hannesson í Þórormstungu. Af þeim, sem sátu stofnfundinn er nú (1946) aðeins einn á lífi, Jón Hannesson í Þórormstungu. Samvinnan, 10. Tölublað (01.12.1946), Blaðsíða 312 Sauðasala fór þá fram til Bretlands og umboðsmaðurinn Louis Zöllner i Newcastle útvegaði vörur.