Rækja

Úr Ásta
Stökkva á: flakk, leita

Saga um ofveiði

Heimild


Árið 1923 var fyrst byrjað að veiða rækju á Sunnmæri og veiddist í fyrstu mjög mikið, enda fjölgaði bátunum ört og voru á þriðja ári orðnir um 30. Það kom skjótt í ljós, að rækjustofninn þoldi ekki þá ágengni, sem slík þátttaka i veiðinni hlaut að hafa í för með sér. Hvert rækjumiðið á fætur öðru var svo uppurið, að ekki þótti svara kostnaði að sarga þar lengur. Sjómennirnir voru einnig á þeirri skoðun, að sjálfsagt væri að láta þau mið í friði um nokkur ár, þar sem mjög var gengið á rækjustofninn. Höfðu fiskimennirnir þá trú, að rækjunni mundi fjölga ört aftur, á þeim miðum, þar sem ekki væru stundaðar veiðar með rækjutrolli um nokkra ára skeið. En þeim hefir ekki orðið að trú sinni. Skulu hér nefnd sem dæmi þrjú víðáttumikil rækjumið á Sunnmæri, þar sem tijraunir hafa verið gerðar með friðun. Svæði þessi eru Vannylvsfjörður, Dalsfjörður og Örsta. Á öllum þessum svæðum var hyrjað að veiða með rækjutrolli árið 1923. Dalsfjörður er minnstur af þessum svæðum, en veiði var þar mjög mikil í hyrjun. Var algengt að fá 30—50 kg í hali. Þegar veiðin hafði verið stunduð þar í hálft annað ár, var svo komið, að rækjan var alveg uppurin. Síðan 1924 hefir þetta mið alveg verið friðað. Sumarið 1928 reyndi að vísu einn hátur þar, en varð ekki var. í ágúst í sumar varð svo aftur gerð tilraun með rækjuveiði í Dalsfirði og varð árangurinn sá, að aðeins 10 rækjur fengust á þriggja stunda togtíma.

Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri